Fyrsta golfmót listamanna á Íslandi verður haldið á hvítasunnudag,
23. maí nk. á Nesvelli á Seltjarnarnesi.
Mótið er opið öllum félögum í
fagfélögum listamanna sem aðild eiga að Bandalagi íslenskra listamanna.
Mótið er punktamót og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Þá verða bílar í verðlaun fyrir að vera næst holu á par 3 brautum.
Í mótslok verður verðlaunaafhending með skemmtiatriðum og öðrum
listrænum uppákomum.
Undirbúningsnefnd,
Arnar Jónsson FÍL
Björn B Björnsson FK
Björn Th Árnason FÍH
Helga Möller FÍH
Randver Þorláksson FÍL