14.5.10 13:56 sigurgeir@fih.is
Breytingar á úthlutunarreglum sjúkrasjóðs
Smelltu á myndina til að stækka
Breyttar úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs FÍH

Sjúkra - og tryggingasjóður FÍH
Úthlutunarreglur
1. gr. Sjúkradagpeningar
1. Sjúkrasjóður FÍH greiðir sjúkradagpeninga til sjóðsfélaga sem eru í starfi en lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir skerðingu á launum vegna veikinda eða slysa.
2. Sjóðsfélagar fá greidda sjúkradagpeninga 5.800 kr. á dag miðað við fullt starf síðastliðna 12 mánuði eða samkvæmt meðalstarfshlutfalli þann tíma.
3. Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum í hámark 84 daga , að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Sjúkradagpeningar greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
4.  Í sérstökum tilvikum er sjóðsstjórn heimilt að greiða sjúkradagpeninga í allt að 6 mánuði.
2. gr. Dánarbætur
Sjóðurinn greiðir dánarbætur að fjárhæð 100.000 kr. vegna andláts sjóðsfélaga. Heimilt er þó að hækka dánarbætur sjóðsfélaga  að fjárhæð 250.000 kr. sem starfað hefur að félagsstörfum fyrir FÍH  í a.m.k 5  ár.
3. gr. Vegna sjúkraþjálfunar og fl.
1. Sjóðsfélagar fá styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum meðferðaraðilum: Hnykkjara (kíropraktor), iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara.  Greiddar eru 2.300 kr. í allt að 18 skipti á hverju 12 mánaða tímabili.
2. Sjóðsfélagar fá styrk vegna meðferðar hjá viðurkenndum græðara, t.d. nuddara, höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, hómópata og vegna nálastungumeðferðar svo og meðferðar hjá alexandertæknikennara. Greiddar eru 2.300 kr. í allt að 18 skipti á hverju 12 mánaðara tímabili.
3. Sjóðsfélagar fá styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sálfræðingi. Greiddar eru 2.300 kr. í allt að 18 skipti á hverju 12 mánaða tímabili.
4. gr. Vegna skoðunar og meðferðar
1. Sjóðurinn greiðir krabbameinsleit, að hámarki 3.000 kr. Ef sjóðsfélagi þarf að fara í framhaldsskoðun greiðir sjóðurinn þá skoðun einnig, að hámarki 12.000 kr.
2. Sjóðurinn greiðir áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd eða sambærilegum aðila, að hámarki 12.600 kr.
3. Sjóðurinn greiðir kostnað vegna meðferðar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði eða sambærilegri stofnun. Greiddar eru 2.500 kr. á dag í allt að 28 daga á hverju 36 mánaða tímabili. Ekki er veittur styrkur til styttri dvalar en í 14 daga.
4. Sjóðsfélagar fá styrk vegna laseraðgerða á augum. Greiddar eru að hámarki 30.000 krónur fyrir hvort auga.

5. gr. Styrkir vegna líknarmála
Sjóðsstjórn er heimilt að veita á ári 300.000 kr. í nafni félagsins til líknarfélaga og annarra mannúðarmála. Heimilt er sjóðstjórn að skipta upphæðinni upp í fleiri en einn styrk.
6. gr.  Læknisaðgerðir og lyf
1. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki vegna kostnaðarsamra aðgerða eða meðferða sem sjóðsfélagi fer í samkvæmt læknisráði. Ekki er veittur styrkur nema kostnaður fari yfir 30.000 kr. Sjóðsstjórn metur hvert tilfelli fyrir sig í samráði við félagslækni hverju sinni.
2. Sjóðurinn greiðir almennt ekki styrki vegna lyfja- og ferðakostnaðar vegna veikinda. Þó er sjóðstjórn heimilt að veita styrki við sérstakar aðstæður, svo sem ef um mikil og óvænt útgjöld eða fjárhagslegra erfiðleika er að ræða af þessum sökum.
                                    7.  gr. Kaup á tækjum

6. Sjóðsfélagar geta fengið styrk vegna kaupa á heyrnartækjum og sérsniðnum  eyrnartöppum. Fjárhæð styrks getur numið allt að 30% af kaupverði tækjabúnaðar, þó að hámarki 30.000 kr. fyrir hvert tæki.
7. Sjóðsfélagar fá styrk vegna kaupa á sjónglerjum einu sinni á hverjum 36 mánuðum. Styrkur nemur þriðjungi af heildarkostnaði sjónglerja, en ekki umgjarða. Framvísa ber augnvottorði frá augnlækni ásamt frumriti kvittana. Ekki er veittur styrkur nema kostnaður vegna sjónglerja fari yfir 30.000 kr.

8. gr. – Glasafrjóvgun – Ættleiðing

Sjóðurinn endurgreiðir að hámarki 30%  kostnaðar vegna tækni- og glasafrjóvgana, svo og ættleiðinga að hámarki kr.120.000.-

9. gr. – Fæðingarstyrkur

Sjóðsfélagar fá greiddan fæðingarstyrk að fjárhæð 170.000 kr. miðað við fullt starf síðastliðna 6 mánuði fyrir fæðingu barns eða samkvæmt meðalstarfshlutfalli þann tíma, enda fari sjóðsfélagi með forsjá barnsins og taki að lágmarki þriggja mánaða fæðingarorlof.
Skýringar                                                                                                            Sjúkrasjóður FÍH sér nú um greiðslu fæðingarstyrkja og hefur tekið við því hlutverki af FOS (Fjölskyldu- og styrktarsjóði). Fæðingarstyrkur er ein greiðsla upp á 170.000 kr. og miðast við hvern félagsmann sem sækir um. Séu báðir foreldrar félagsmenn geta báðir sótt um fæðingarstyrk. Athugið að skila þarf inn fæðingarvottorði og afriti af síðasta launaseðili. 
Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að styrkja sjóðsfélaga með fé og koma þannig til móts við tekjutap vegna ólaunaðrar fjarveru vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæðna. Einnig er markmiðið að bæta útgjöld vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu og óvæntra áfalla sjóðsfélaga.

Um sjóðinn
Gengið var frá stofnun Styrktarsjóðs fyrir opinbera starfsmenn með samningi sem gerður var milli ríkisins og BHM, BSRB og KÍ árið 2000. Þessi sjóður tók til starfa 1. júlí 2001. Réttur sjóðsfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag vegna umsækjenda í samtals 6 mánuði, þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað
                                                                                                                                                   Greiðslur vegna fæðingarstyrks
Umsóknum skal skila fyrir 10. hvers mánaðar. Miðað er að því að styrkir séu greiddir út 25. hvers mánaðar (ef frídagur, þá næsti virki dagur á eftir).

10.gr  Vegna kaupa á fagörorku

Ef sjóðsfélagi óskar getur hann sótt um styrk vegna fagörorkutryggingar sem FÍH kaupir f.h. sinna félagsmanna.  Sjúkrasjóði er heimilt að greiða allt að 9.000.- kr  á ári á móti framlagi sjóðsfélaga.  Ef kostnaður sjóðsins vegna tryggingakaupa verður sjóðnum óhægstæður hefur stjórn sjóðsins  heimild til þess að skerða greiðslur til tryggingataka vegna annara ákvæða.
11.gr. Tannlækningar
Sjóðsfélagar geta sótt um  styrk vegna tannlækninga  sem nauðsynlegar eru vegna starfa  sjóðsfélaga sem hljómlistarmanns. Sjóðurinn greiðir  30% af kostnaði  við aðgerðir umfram 30.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili, þó að hámarki 100.000 kr.
12. gr. Réttindi
1. Sjóðsfélagar öðlast rétt til úthlutunar úr Sjúkrasjóði FÍH eftir 6 mánaða iðgjaldagreiðslur í hann. Sjóðsfélagi öðlast þó rétt til úthlutunar eftir iðgjaldagreiðslu í einn mánuð ef hann fyrir það greiðslutímabil átti rétt til úthlutunar úr sjúkrasjóði annars stéttarfélags, enda veiti sá sjóður fyrrum sjóðsfélögum úr Sjúkrasjóði FÍH sams konar rétt.
2. Réttur til úthlutunar fellur niður á meðan sjóðsfélagi nýtur launalauss leyfis, en stofnast að nýju við fyrstu iðgjaldagreiðslu að loknu leyfi.
3. Sjóðsfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða stéttarfélagsgjald meðan á því stendur halda fullum réttindum, enn fremur atvinnulausir sjóðsfélagar sem greiða stéttarfélagsgjald meðan þeir eru á atvinnuleysisskrá.
4. Réttur til greiðslna úr sjóðnum fyrnist sé ekki sótt um þær innan 12 mánaða frá því að bótaréttur skapaðist.
5. Réttur til greiðslu samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar fyrnist ef hennar hefur ekki verið vitjað innan 6 mánaða frá því að tilkynning um úthlutunarrétt var send til viðkomandi.
6. Réttur til nýs dagpeningatímabils stofnast aftur þegar sjóðsfélagi hefur greitt 6 mánuði í sjóðinn eftir að síðasta dagpeningatímabili lauk.
7. Styrkur úr Sjúkrasjóði FÍH getur aldrei orðið hærri en sem nemur útlögðum kostnaði í hverju tilviki.
8. Sjóðstjórn er heimilt að skerða réttindi ef einstaklingur sækir um vegna fjölmargra þátta inna 12 mánaðar tímabils og sjóðsfélagi hefur fengið umtalsverðar upphæðir greiddar.
9. Réttindi sjóðsfélaga fyrnast hafi ekki verið greitt fyrir hann í sjóðinn á 12 mánaðar tímabili samfellt.
10. Sjóðsfélagar halda réttindum í 12 mánuði eftir að þeir láta af störfum og fara á eftirlaun.
13. gr.  Fylgigögn og skilyrði
1. Sá sem óskar eftir greiðslu úr sjóðnum og uppfyllir skilyrði reglna þessara skal leggja fram skriflega umsókn á eyðublaði sjóðsins. Með henni skulu fylgja nauðsynleg gögn eftir því sem við á:
a) Vegna umsóknar um sjúkradagpeninga, sbr. 1. gr., skal fylgja læknisvottorð er tilgreini þann dag er slys eða veikindi bar að höndum og hvenær viðkomandi varð/verður aftur starfshæfur, svo og staðfesting launagreiðanda um síðasta greiðsludag launa. Við langvarandi veikindi þarf að jafnaði að skila nýju læknisvottorði á tveggja mánaða fresti.
b) Vegna umsóknar um dánarbætur skv. 2. gr. skal fylgja útskrift úr dánarskrá viðkomandi sýslumannsembættis.
c) Vegna umsóknar um greiðslu kostnaðar skv. 1. og 2. mgr. 3. gr. skal fylgja vottorð/tilvísun frá lækni um nauðsyn á heilbrigðisþjónustu.
d) Umsókn um endurgreiðslu kostnaðar skv. 3., 4., 6., 7., 8. og 9. gr. skal fylgja frumrit reiknings þar sem fram kemur nafn fyrirtækis og kennitala ásamt upplýsingum um þá þjónustu sem veitt er.
e) Vegna umsóknar skv. 5. gr. fylgi læknisvottorð.
2. Sjóðstjórn getur jafnan farið fram á að lögð verði fram nánari gögn til stuðnings umsókn.
3. Kostnaður vegna læknisvottorða skv. 1. mgr. er endurgreiddur gegn framvísun frumrits kvittunar.
4. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá trúnaðarmönnum og á vefsíðu Félags íslenskra hljómlistarmanna.
14. gr. Umsóknarfrestur
Umsóknir eru afgreiddar einu sinni í mánuði. Hverju sinni eru teknar til afgreiðslu umsóknir sem borist hafa 20. sama mánaðar.
15. gr. Endurskoðun
1. Úthlutunarreglur Sjúkra- og tryggingasjóðs Félags íslenskra hljómlistarmanna skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
2. Úthlutunarreglur Sjúkra- og tryggingasjóðs Félags íslenskra hljómlistarmanna  og allar breytingar á þeim skulu birtar opinberlega á heimasíðu FÍH. Úthlutunarreglur þessar taka gildi 10. maí 2010.
3. Sjóðsstjórn er heimilt að draga úr greiðslum eða stöðva ef ekki eru til peningar í sjóðnum til þess að standa við skuldbindingar sínar.
 




Félag íslenskra hljómlistarmanna | Rauðagerði 27 | Sími 588 8255 | Fax 588 8215 9 tengdir núna