Á síðustu tónleikum raðarinnar Sumartónar í Elliðaárdal koma gestir alla leið frá Ástralíu. Það er Kór St. Michael´s Grammar School sem skipaður er unglingum á aldrinum 13 - 18 ára. Kórinn hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir flutning sinn. Þau munu flytja fjölbreytta og vandaða efnisskrá sem spannar a.m.k. fimm aldir og heiminn allan! Sumartónar í Elliðaárdal er röð vandaðra tónleika sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20:00 frá 23. júní til 14. júlí 2010 og er þetta í annað sinn sem slík tónleikaröð er haldin í kirkjunni. Aðgangur 1.000 kr.