Þær stöllur Eydís Franzdóttir óbóleikari og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari flytja okkur hugljúfa tóna eftir m.a. Krebs og Rheinberger á næstsíðustu tónleikum Sumartóna í Elliðaárdal. Báðar hafa þær Eydís og Sigrún víða komið fram og hvarvetna hlotið lof fyrir leik sinn. Sumartónar í Elliðaárdal er röð vandaðra tónleika sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20:00 frá 23. júní til 14. júlí 2010 og er þetta í annað sinn sem slík tónleikaröð er haldin í kirkjunni. Aðgangur 1.000 kr.