Félagar úr hinum margrómaða kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, halda hádegistónleika á miðvikudögum í júlí og ágúst í sumar. Kórinn þykir með þeim bestu á Íslandi og syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar sem stofnaði kórinn árið 1996 Tónleikarnir eru haldnir á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju Sjá nánar á www.listvinafelag.is og http://scholacantorum.is/ Aðgangseyrir kr. 1.000