Síðasti viðburður
Kirkjutónlist, athafnir - brúðkaup

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010

Staðsetning: Tímasetning: Smelltu á myndina til að stækka

101 Reykjavík
lau. 10. júlí 2010
kl. 12:00 til 12:30
   
Nánari lýsing:

Einn frægasti konsertorganisti heims, Dame Gillian Weir, leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju.

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju er nú haldið í 18. sinn. Tónleikaröðin er haldin undir merkjum Listvinafélags Hallgrímskirkju og hefur verið árlegur viðburður frá því að Klais-orgel kirkjunnar var vígt 1992.

Alþjóðlegar stjörnur úr orgelheiminum eru meðal erlendra gesta í sumar, Dame Gillian Weir frá Bretlandi, Winfried Bönig organisti Kölnardómkirkju, danski orgelsnillingurinn Christian Præstholm og Halgeir Schiager virtúós frá Noregi. Íslenskir orgelleikarar eru í öndvegi í ár enda er það fagnaðarefni að stöðugt bætist í hóp vel menntaðra organista á Íslandi.

Aðgangseyrir er kr. 1.000

Vefsíða viðburðar Deila á Facebook
Síðasti viðburður



Félag íslenskra hljómlistarmanna | Rauðagerði 27 | Sími 588 8255 | Fax 588 8215 8 tengdir núna