Danski orgelsnillingurinn Christian Præstholm leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju er nú haldið í 18. sinn. Tónleikaröðin er haldin undir merkjum Listvinafélags Hallgrímskirkju og hefur verið árlegur viðburður frá því að Klais-orgel kirkjunnar var vígt 1992. Alþjóðlegar stjörnur úr orgelheiminum eru meðal erlendra gesta í sumar, Dame Gillian Weir frá Bretlandi, Winfried Bönig organisti Kölnardómkirkju, danski orgelsnillingurinn Christian Præstholm og Halgeir Schiager virtúós frá Noregi. Íslenskir orgelleikarar eru í öndvegi í ár enda er það fagnaðarefni að stöðugt bætist í hóp vel menntaðra organista á Íslandi. Aðgangseyrir er kr. 1.000